Monday, July 14, 2008

|
Ég er víst búin að lofa að skrifa aðra færslu, þannig að það er best að standa við það.

Mér skildist á þessum 37 kommentum í síðustu færslu sem varð ansi skrautleg að það væri einhver fílingur fyrir útilegu núna næstu helgi.
Ég er auðvitað til í að kíkja út fyrir bæinn, getum kallað þetta hvað sem er en aðal ástæðan er auðvitað bara að koma saman og hafa gaman af :)

Hugmyndin er að fara á Úlfljótsvatn til Evu :) ég persónulega kæmi ekki fyrr en á laugardeginum aðalega út af því að ég er að vinna til 17 og nenni ekki útúr bænum eftir það.
Ég væri til í að heyra í þeim sem eru til í þetta og ætla að koma svo við getum planað eitthvað.

....og muna svo öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir :)

Grill og útilegukveðja frá Magneu