Wednesday, June 18, 2008

|
Ég ákvað að skrifa nýja færslu svo við værum ekki að kommenta endalaust á sömu færsluna...............................sniðug ég ;)

Ennnnnnnnnnnn.......útilegan!

Mál nr.1 dagsetning fyrir útileguna: Þar sem það er ekki séns að við komumst allar á sama tíma þá ætla ég að ath hvernig ykkur elsku línum líst á helgina 18-20 júlí eins og Ásta stakk upp á í kommenti nr 139 í síðustu færslu. ? ? ? ?
Það er allt í lagi að það komist ekki allar þó að það væri auðvitað skemmtilegast, en við erum það margar að þetta þarf að planast með ca. 2 ára fyrirvara ef allir eiga að komast.
Er ekki bara málið að setja niður þessa dagsetningu og ef margir mótmæla og allt verður vitlaust þá segi ég bara upp sem sjálfskipaður formaður ferðanefndarinnar :)

Mál nr 2 staðsetning: Þar sem sólin verður.....Laugavatn, Úlfljótsvatn eða sveitin hjá Láru.....getum rifist um þetta seinna hihihi.....

Mál nr 3 dagsferð: Mér finnst ekki vitlaust að við myndum kannski líka reyna að fara í dagsferð og koma til móts við þá sem ekki komast í útileguna :) Hvað segi þið með það??

Kommentið endilega svo við getum farið að skipuleggja eitthvað skemmtilegt :)

Sumar og sólarkveðja frá sjálfskipuðum formanni ferðanefndarinnar sumarið 2008 henni Magneu