Wednesday, January 30, 2008

|
það virðist sem kommentin við síðustu færslu hafi farið framhjá einhverjum og til að það sé alveg á hreinu að þá er nýjasta djamm-dagsetningin 16. febrúar, semsagt laugardagur eftir rúmar tvær vikur. hentar það ekki öllum?
svo var eva að spyrja mig hvort við ætluðum út að borða og ég sagðist myndu spyrja ykkur. ég er alveg til í það.. alltaf gott að fá góðan mat :)
svo þurfum við að ákveða hvar þetta á að vera.. eins að leggja í púkk fyrir víni (þær sem vilja) því eins og þið vitið þá er þetta kokteiladjamm og ætlar vinur minn mojito og félagi hans cosmo að kíkja við!
látiði það svo endilega berast að það sé komin ný færsla og dagsetning.

leggið nú orð í belg.. bæði varðandi dagsetninguna, húsnæði og hvort við eigum að fara út að borða líka eða bara vera svelgir.

arnie