Wednesday, January 16, 2008

|
sælar skvísur og gleðilegt ár!

ég og auður a.k.a. audrey vorum að ræða það um daginn að það færi að koma tími á almennilegt tjútt hjá okkur. þá er ég að tala um með kokteilum og alles.. hvernig líst ykkur á það?
þar sem skólinn er bara nýbyrjaður þá er alveg málið að taka eins og eitt kvöld og hressa okkur aðeins við í skammdeginu.
ég set þetta hingað inn með góðum fyrirvara svo þið sem eruð ábyrgar mæður getið rætt við mennina ykkar nú eða reddað pössun og þið sem búið í sveit kannski reddað fari til borgar óttans. og eina afsökunin fyrir engri drykkju er barn á brjósti!

látiði nú í ykkur heyra elskurnar..

keðja frá örnunni á næturvakt sem er að fara til danmerkur á smashing pumpkins með söndru! je beibí!!