Tuesday, January 30, 2007

|
sælar verið nú frúr mín góðar,

ekki er mikið um gleðina á heimilunum á íslandi, né þau í danmörku sem okkar kæru laugalínur búa í. já já já ísland rétt tapaði gegn dönum, fussum svei og fussum svei... en leikurinnvar sko ansi spennandi, sjaldan sem spennan fer svona alvegmeð mann, púfff........

Mig langaði bar að seigja halló, og vera sú fyrsta sem skrifaði árið 2007, á 10 ára útskriftarári laugalækinga af árgerð 1981....... ja aldurinn er svei mér að færast yfir okkur gömlu kellurnar......
Í dag fór ég í skólan aftur eftir vikufrí, en hún litla músarsnúllan mín hun Hrafntinna er búin að vera með hlaupabóluna, en það er svo gott að fá hana á meðan maður er ungur,þá finnur maður svo lítið fyrir henni;)
en já og já og já..... við kanski reynum svo að hittast sem fyrst aftur, núna kanski i byrjun febrúar........
þangað til næst, ciao bella og bravissimo og hlakka til næsta hittings, ( svo upp með prjónana og garnið, og ekki vera að taka saumavélina með)
einu sinni enn ciao
bæbæ kv andrea