Monday, July 14, 2008

|
Ég er víst búin að lofa að skrifa aðra færslu, þannig að það er best að standa við það.

Mér skildist á þessum 37 kommentum í síðustu færslu sem varð ansi skrautleg að það væri einhver fílingur fyrir útilegu núna næstu helgi.
Ég er auðvitað til í að kíkja út fyrir bæinn, getum kallað þetta hvað sem er en aðal ástæðan er auðvitað bara að koma saman og hafa gaman af :)

Hugmyndin er að fara á Úlfljótsvatn til Evu :) ég persónulega kæmi ekki fyrr en á laugardeginum aðalega út af því að ég er að vinna til 17 og nenni ekki útúr bænum eftir það.
Ég væri til í að heyra í þeim sem eru til í þetta og ætla að koma svo við getum planað eitthvað.

....og muna svo öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir :)

Grill og útilegukveðja frá Magneu

Wednesday, June 18, 2008

|
Ég ákvað að skrifa nýja færslu svo við værum ekki að kommenta endalaust á sömu færsluna...............................sniðug ég ;)

Ennnnnnnnnnnn.......útilegan!

Mál nr.1 dagsetning fyrir útileguna: Þar sem það er ekki séns að við komumst allar á sama tíma þá ætla ég að ath hvernig ykkur elsku línum líst á helgina 18-20 júlí eins og Ásta stakk upp á í kommenti nr 139 í síðustu færslu. ? ? ? ?
Það er allt í lagi að það komist ekki allar þó að það væri auðvitað skemmtilegast, en við erum það margar að þetta þarf að planast með ca. 2 ára fyrirvara ef allir eiga að komast.
Er ekki bara málið að setja niður þessa dagsetningu og ef margir mótmæla og allt verður vitlaust þá segi ég bara upp sem sjálfskipaður formaður ferðanefndarinnar :)

Mál nr 2 staðsetning: Þar sem sólin verður.....Laugavatn, Úlfljótsvatn eða sveitin hjá Láru.....getum rifist um þetta seinna hihihi.....

Mál nr 3 dagsferð: Mér finnst ekki vitlaust að við myndum kannski líka reyna að fara í dagsferð og koma til móts við þá sem ekki komast í útileguna :) Hvað segi þið með það??

Kommentið endilega svo við getum farið að skipuleggja eitthvað skemmtilegt :)

Sumar og sólarkveðja frá sjálfskipuðum formanni ferðanefndarinnar sumarið 2008 henni Magneu

Wednesday, May 21, 2008

|
búin að setja inn könnun fyrir útilegunni. set inn núna hvort það eigi að vera útilega eða dagsferð. þegar það er komið á hreint þá er það spurning með dagsetninguna.

allar að kjósa!

Wednesday, May 14, 2008

|
sælar..

það var ekki komið á hreint hver ætlar að halda klúbbinn á laugardaginn. einhver sjálfboðaliði?
eins og ég sagði í kommenti þá get ég ekki haldið hann því bjarni er á næturvöktum og verður sofandi í hádeginu..
einhver?

Wednesday, May 07, 2008

|

Friday, May 02, 2008

|
hæ stelpur..

eva hringdi í mig áðan og bað mig að setja hér inn að hún ætlar að hafa saumó á mánudagskvöldið klukkan níu. hún bað mig einnig að setja inn símann sinn og að þið mynduð láta hana vita hvort þið kæmuð eða ekki. semsagt ekki setja það í komment heldur senda henni sms.. hún bað mig um það því ef það kemst kannski bara ein af ykkur þá held ég að hún sleppi þessu. síminn hennar er 6630482.
ég kemst því miður ekki (ég veit ég veit.. ömurlegt!) en ég sé ykkur þá bara hressar og kátar sautjánda maí! við þurfum einnig að ákveða hver á að halda þann klúbb.

sjáumst..

arna

Saturday, April 19, 2008

|
magnús er mættur í tenglana hér til hliðar. hann er krútt sem er gaman að skoða þegar maður á að vera að læra undir próf eða skrifa ritgerð.. ég held að barnalandssíður séu sjaldan eins mikið skoðaðar á þessu heimili en einmitt í prófatörninni..

kveðja úr laugarásnum..

ps. er ekki upplagt að hafa einn barnasaumó eftir próf? til dæmis í hádeginu á laugardegi?

Friday, April 04, 2008

|
Páskasaumaklúbburinn!!!!!!!!

Sælar dömur..... var að spá í að bjóða ykkur heim í síðbúinn páskasaumaklúbb...... Næsta vika, hvað segið þið, hvaða dagur hentar best.... ég get alla daga....endilega kommenta....

Kveðja frá heimavinnandi kellingunni úr vesturbænum!!!!!!

Saturday, February 23, 2008

|
mojito hittingur 16. febrúar 2008

þarf eitthvað að segja það? zoolander! klassi..

kvöldið byrjaði rólega á áti og spjalli..

..og almennri gleði

svo byrjaði ballið! mojito!!

húsfrúin orðin hress.. magnea líka

fólk gerðist ástleitið..

tungur voru settar út..

hver elskar ekki mojito? og auði líka!

...

takk fyrir kvöldið elskur! ég tók því miður ekki myndavélina með mér í bæinn. en mig minnir að auður hafi tekið sína með. auður.. það er komið að þér!

Friday, February 15, 2008

|
þá er ég búin að fara og versla og kostaði þetta samtals 4634 krónur sem gera 579 krónur á mann (eva borðar ekki en kemur seinna um kvöldið svo ég rukka hana ekkert). ég keypti auðvitað allt sem þurfti í kjúklinginn og svo hrísgrjón, gos, naan brauð og smá snakk.
reikningsnúmerið mitt er 515-26-833161 kt. 200781-5039.

hlakka til að sjá ykkur allar með bros á vör og mojito í hönd!

arna

Monday, February 11, 2008

|
jæja.. er það þá ákveðið að ég eldi fyrir ykkur indverskan kjúkling? ég fer þá og versla og þið borgið mér.
þetta fer að skella á þannig að allir sem samþykkja þetta rétti upp hendi og setji inn komment! þið voruð held ég allar búnar að kommenta á þetta nema dröfn og berglind. stelpur.. komaso!!

svo er það áfengið. planið var mojito er það ekki? þá þarf romm þannig að allar sem ætla að vera með í því segi frá því um leið og þær rétti upp hendi.

kveðja,

arna hostess

Wednesday, January 30, 2008

|
það virðist sem kommentin við síðustu færslu hafi farið framhjá einhverjum og til að það sé alveg á hreinu að þá er nýjasta djamm-dagsetningin 16. febrúar, semsagt laugardagur eftir rúmar tvær vikur. hentar það ekki öllum?
svo var eva að spyrja mig hvort við ætluðum út að borða og ég sagðist myndu spyrja ykkur. ég er alveg til í það.. alltaf gott að fá góðan mat :)
svo þurfum við að ákveða hvar þetta á að vera.. eins að leggja í púkk fyrir víni (þær sem vilja) því eins og þið vitið þá er þetta kokteiladjamm og ætlar vinur minn mojito og félagi hans cosmo að kíkja við!
látiði það svo endilega berast að það sé komin ný færsla og dagsetning.

leggið nú orð í belg.. bæði varðandi dagsetninguna, húsnæði og hvort við eigum að fara út að borða líka eða bara vera svelgir.

arnie

Wednesday, January 16, 2008

|
sælar skvísur og gleðilegt ár!

ég og auður a.k.a. audrey vorum að ræða það um daginn að það færi að koma tími á almennilegt tjútt hjá okkur. þá er ég að tala um með kokteilum og alles.. hvernig líst ykkur á það?
þar sem skólinn er bara nýbyrjaður þá er alveg málið að taka eins og eitt kvöld og hressa okkur aðeins við í skammdeginu.
ég set þetta hingað inn með góðum fyrirvara svo þið sem eruð ábyrgar mæður getið rætt við mennina ykkar nú eða reddað pössun og þið sem búið í sveit kannski reddað fari til borgar óttans. og eina afsökunin fyrir engri drykkju er barn á brjósti!

látiði nú í ykkur heyra elskurnar..

keðja frá örnunni á næturvakt sem er að fara til danmerkur á smashing pumpkins með söndru! je beibí!!

Friday, December 14, 2007

|
Þann nítjánda des.... Heima hjá mér sem er núna Jónsgeisli 45 í Grafarholtinu. Ég veit ekki alveg klukkan hvað þannig að þið verðið aðeins að hjálpa mér með það. Annars hlakka ég bara til að sjá ykkur.....

Lára kLára

Thursday, November 29, 2007

|
hæ stelpur!

karen og atli eignuðust strák í gær. 13 merkur og 50 cm.
svaka sætur og eru þau búin að setja myndir á facebook :)

kv. arna

Sunday, October 14, 2007

|
Jæja þá er loksins komið að því :)

ég ætla að standa við það að hafa hitting!!!
Sandra reyndar stjórnar tímasetningunni, en miðvikudagurinn er eini dagurinn sem hún kemst þessi elska :)
Vona að sem flestar komist með svona stuttum fyrirvara, því fleiri því skemmtilegra :) ekki væri verra að fá að knúsa aftur litlu krílin.

Endilega kommentið hvort þið komist eða ekki, veit reyndar að Auður er út.

Þið vitið væntanlega hvar ég bý, og mæting ca 8:30 svo ég geti komið dýrinu í rúmið áður en fjörið byrjar....hehe....

Sjáumst, Magnea

Thursday, September 27, 2007

|
-saumaklúbbur hjá andreu 26. september-


ninja katrín mætti á svæðið

og rökkvi að sjálfsögðu, en hann svaf mestallan tímann

magnea, dröfn og auður svona líka hressar

eva, ninja katrín og berglind

dröfn gaf veitingunum toppeinkunn

rökkvi ákvað svo að mæta í partýið sem súpermann..

Tuesday, September 25, 2007

|
jæja skvísis!!!!!!

Þá ætla ég bara að negla þetta niður.
Á miðvikudaginn kl 8:30. Ægissíða 48, eða húsið beint á móti Örnu!!!!

Ég á bara eftir að heyra með Láru, Berglindi og Evu (vona að ég hafi ekki gleymt neinum). Ég vona að þið komst þá...... ég skal senda sms á ykkur, núna...

Monday, September 24, 2007

|
sælar dömu!!!!!

ég var að spá í að halda saumaklúbb í vikunni, var að spá í seinni part vikunnar, miðvikudag eða fimmtudag, hvað segið þið um það

endilega allar að kommenta. hlakka svo til að sjá ykkur.
kv Andrea

Saturday, August 04, 2007

|
hæ stelpur,

ég vildi bara láta ykkur vita af því að eva eignaðist stelpu á miðvikudaginn :)
sextán og hálf mörk og 52 cm. allt gekk vel og heyrði ég aðeins í henni í gær og sú litla er víst svaka dúlla með mikið dökkt hár. dröfn er líka búin að kíkja á hana og hélt varla vatni yfir fegurðinni ;)

kv. arna

Thursday, July 26, 2007

|
jæja stelpur.. hvað segiði þá? hressar? já ég líka.. er á næturvakt númer hundraðogeitthvað og hlakka mjög svo til að fara heim! spennandi helgi framundan.. magnea að fara upp að altarinu og sólveig að frumsýna frumburðinn.. alla vega fyrir okkur flestum. ég veit ekki með ykkur en ég er spennt. svo spennt að ég er að spá í að halda smá klúbb. hvernig líst ykkur á það? það veltur samt soldið á henni múttu minni, en hún er að fara í sumarfrí og verður held ég uppi í bústað alla næstu viku hjá sínum heittelskaða. sá er maggi, gamli kærastinn hennar fyrir ykkur sem vissuð það ekki :) stórar fréttir þar.. íbúðakaup og gifting og ég veit ekki hvaðoghvað...

alla vega.. ég vona að þið kíkið enn hingað inn og sjáið þessi skilaboð.
verð í sambandi á morgun þegar ég veit meira um plön frú katrínar..

kveðja,

arna þreytta á næturvakt..

Friday, May 25, 2007

|
árgangsmót!!

endilega kíkja allar á www.blog.central.is/laugalaekur97

láta vita hvað ykkur finnst í kommenti...

kv. arna

Monday, May 14, 2007

|
Halló þið allar, við Georg erum að koma til Íslands og við ætlum að reyna að leigja íbúðina okkar hér í DK út á meðan. Hún er til leigu frá 27. júlí til 12. ágúst . Við ætlum að leigja hana á 25. þús fyrir allann tímann. íbúðin er á Öresunds kollegíinu í kaupmannahöfn. Ca. 10 mín að hjóla niðrí bæ og 10 mín út á strönd. Íbúðin er að sjálfsögðu með öllum húsgögnum stóru rúmi og sófa sem einn getur sofið í.

Ef ykkur langar að vera í Köben á þessum tíma (eða vitið um einhvern annann áhugasaman) þá endilega sendið mér email solveig.edda@gmail.com

p.s. það er líka hægt að vera í styttri tíma og þá kostar það eitthvað minna, að sjálfsögðu.

Sunday, March 25, 2007

|
hæ stelpur!

sandra sendi mér sms í morgun og bað mig að sjá til þess að skilaboðin sem hún setti í kommentakerfið kæmust til skila. þau voru eftirfarandi:
hæ hæ Sandra her... eg var ad reyna ad skrifa blogg en tad kom alltaf eitthvad bolvad email og rugl arg... En alla vega eg er ad koma til Islands og langar til ad halda minn fyrsta saumarklubb!! :D jeijeiei duglega sandra Hvernig list ykkur a maundaginn 2 eda tridjudaginn 3 april?? Endilega skiptist a skodunum og akvedid dag...Eg er nebbla ad fara til barcelona i fyrramalid :D og mun tvi ekki kikja a netid fyrr en um næstu helgi tegar eg kem til islands...Knus og hlakka til ad hitta ykkur sem flestar!!Sandra


hún komst ekki inn á bloggerinn vegna þess að við þurftum að uppfæra bloggið og skrá okkur á nýja bloggerinn. ég er búin að því núna og þá virkar þetta þannig að þið smellið á "new blogger", setjið inn notendanafnið laugalinur@gmail.com og password sem er það sama og áður.
þá vitiði það og setti ég einnig öll póstföngin okkar þarna inn undir tengiliðir. þið kannski kíkið á það (með því að fara inn á www.gmail.com og skrá ykkur inn) og lagið það ef einhver póstföng eru ekki rétt eða úrelt. svo er líka fínt að hafa pósthólf þaðan sem við getum sent pósta á hverja aðra ef við höfum eitthvað að segja sem við viljum ekki að fari á netið.

jæja þetta er nóg í bili..

arna tölvunörd

Wednesday, February 28, 2007

|
Hvað er að gerast með þessa síðu okkar !!!!
Þetta gengur bara engan vegin að við skrifum ekki neitt...humm...

Ég vildi bara skrifa hérna inn til að minna á að það hlýtur að vera komin tími á hitting. Ég er alveg til í að halda næsta hitting, en held samt að það sé komin röðin að henni Örnu ;)
Passar það ekki ??
Endilega commentið á hvenar hentar ykkur að hittast.

Heyrumst...tjátjá..Magnea

Tuesday, January 30, 2007

|
sælar verið nú frúr mín góðar,

ekki er mikið um gleðina á heimilunum á íslandi, né þau í danmörku sem okkar kæru laugalínur búa í. já já já ísland rétt tapaði gegn dönum, fussum svei og fussum svei... en leikurinnvar sko ansi spennandi, sjaldan sem spennan fer svona alvegmeð mann, púfff........

Mig langaði bar að seigja halló, og vera sú fyrsta sem skrifaði árið 2007, á 10 ára útskriftarári laugalækinga af árgerð 1981....... ja aldurinn er svei mér að færast yfir okkur gömlu kellurnar......
Í dag fór ég í skólan aftur eftir vikufrí, en hún litla músarsnúllan mín hun Hrafntinna er búin að vera með hlaupabóluna, en það er svo gott að fá hana á meðan maður er ungur,þá finnur maður svo lítið fyrir henni;)
en já og já og já..... við kanski reynum svo að hittast sem fyrst aftur, núna kanski i byrjun febrúar........
þangað til næst, ciao bella og bravissimo og hlakka til næsta hittings, ( svo upp með prjónana og garnið, og ekki vera að taka saumavélina með)
einu sinni enn ciao
bæbæ kv andrea

Friday, December 29, 2006

|
Hey þið elsku músirnar mínar......ekki vera að koma með neitt mikið í kvöld......ég er með ídýfur, kex, snakk og osta......einstaklega mikið af gosi og djúsi ...fyrir þá sem vilja blanda,, hvíthvín, bjóra og solleis.....endilega ef þið eruð með séróskir þá kaupiði það en ég nenni ekki að sitja uppi með 10 snakkpoka og 15 osta ef þið farið allar að koma með eitthvað!!!! og hana nú!!!

OG svo allir að koma sér í gírinn fyrir kvöldið.....með sælubros á vör.....þeir sem brosa ekki þurfa að taka tequila skot.......vúbbídúbbí.......

Thursday, December 28, 2006

|
Hæ elskurnar og gleðileg jólin.

Jæja þá er komið að því að við hittumst heima hjá mér.
Ég á heima á Lindargötu 42, íbúð 302
Þetta eru blokkirnar beint fyrir aftan stóra byggingarsvæðið við sæbrautina þar sem Skuggahverfið er að rísa. Annars hringiði bara í mig ef þið finnið þetta ekki...868-4010
Ég á eitthvern bjór, fullt af hvítvíni og svo ætla ég að standa í ströngu og mixa Mojito og Cosmopolitan fyrir þær sem vilja!!!
Þar sem ég er einstaklega fátækur námsmaður þá megið þið koma með eitthvað sem viljið en ég verð með áfengi í boði;)
Sambandi við pakkaleikinn.....er hann ennþá ON? Ég var að tala við stelpurnar um að hafa það bara MAX 1000 krónur....þá getur fólk bara ráðið sjálft hvað það kaupir ......ALLT nema JÓLA...kerti, servettur, bakka, nammi og fleira jóla ...HEHEHE....
Annars hlakka ég til að sjá ykkur á morgunn....eigum við að segja um 8 leytið, megið koma fyrr ef ykkur langar en BANNAÐ að koma eftir 9!!!!!
Singstar verður á slaginu 9!!!!
Magnea ætlar að koma með PS2 og ásta diskana en spurning hvort Sólveig ætlaði að redda hljóðnemum!!!
Jæja eintóm gleði og hamingja
Berglind Grinch......

Wednesday, December 27, 2006

|
sælar!

er það þá ákveðið að hafa singstar/kjaftaklúbb hjá berglindi á föstudaginn og allir koma með smá pakka? hvernig er með e-ar veitingar eða þvíumlíkt? á maður að koma með e-ð með sér?

arnie

Saturday, December 02, 2006

|






Hvað segið þið um að hafa sing star partý í staðinn fyrir sauma/kjaftaklúbb??
Hver er til?

Kv. Sólveig